Merki liðsins
Ugla sat á kvisti…
- merkin frá 1919 til dagsins í dag
ÞAÐ SEM ER SÉRSTAKT við merki Leeds United er hversu oft því hefur verið breytt. Ekkert lið í ensku deildunum hefur breytt merki sínu jafn oft eða gert á því jafn róttækar breytingar. Á þessari síðu er fjallað um merki yngsta liðsins í ensku úrvalsdeildinni.
| Þegar Leeds United var stofnað tók félagið við merkinu sem Leeds City hafði notað frá því um 1908. Á því voru m.a. þrjár uglur en það var byggt á skjaldarmerki borgarinnar, ýmist í tveimur litum eða þremur. Á þessum tíma voru merki sjaldnast á búningum, heldur notuð sem vörumerki liðsins en búningarnir ómerktir. Skjaldarmerkið var notað fram undir 1960. Síðan þá eru merkin orðin níu. | ![]() |
![]() |
Um 1965 kom Uglan, sem situr á kvisti. Hún var fyrsta eiginlega Leeds merkið. Sex árum síðar var hún látin fara. Ástæðan var sú að hinn hjátrúarfulli Don Revie taldi fugla vera óheillamerki og vildi ugluna burt. |
![]() |
Um tíma var ekkert merki notað en stafirnir LUFC bróderaðir í búningana. Þetta “merki” var notað 1971-1973. Það skaut aftur upp kollinum 20 árum síðar. Það var þá notað um tíma með Rósinni á aðalbúningnum og í nýja merkinu sem nú er notað, er LUFC skrifað lóðrétt með þessari sömu leturtegund. |
| Árið 1973 var Smiley kynntur til sögunnar. Merki þar sem stafirnir LU voru látnir mynda eins konar broskarl. Þetta merki hippatímans er greinilega undir áhrifum tíðarandans, en þessi leturgerð var t.d. algeng á plötuumslögum. Gulir stafir á bláum grunni voru notaðir til 1976 og svo seinna aftur á varabúningana. | ![]() |
| Í annari útgáfu var búið að víxla litunum, bláir stafir á gulum grunni – og stöfunum snúið um 45 gráður. Þetta var aðalmerkið í aðeins eitt tímabil 1976/77 og svo notað aftur á útibúingana tveimur árum síðar. | ![]() |
| Í síðustu útgáfunni af Smiley var bætt við “Leeds United Football Club”. Vildu sumir meina að það hafi verið vegna þess hve margir áttuðu sig ekki á að Broskarlinn var myndaður af stöfunum LU og skildu ekki merkið. Þessi útgáfu var notuð á heimabúningana 1977-1981 en annað hinna merkjanna tveggja notað á útibúningana. Innrammaður Smiley var því aldrei notaður einn og sér. | ![]() |
![]() |
Næst kom Peacock merkið 1981 þar sem vísað var í gamla gælunafn félagsins “The Peacocks” sem þá var löngu aflagt. Vorið 1982 féll Leeds í 2. deild og var þá rifjuð upp hjátrú Revies um að fuglar séu óheillamerki. Töldu sumir sig vera búna að fá fullvissu um það að fuglar eigi ekkert erindi í merki Leeds United. Peacock merkið var aflagt 1984 og síðan hafa ekki sést fuglamyndir í merkjum Leeds United. |
| Rósin tók við af páfuglinum. Í merkinu er “The white rose of Yorkshire” þar sem bolti myndar miðju blómsins og er nafn félagsins skrifað í rósina. Rósin var einkenni liðsins í fjögur ár eða þar til Skjöldurinn leysti hana af hólmi 1998. Þó rósin sé ekki lengur hið opinbera merki Leeds United er hún ekki alveg horfin. Í nýja merkinu er lítil mynd af rósinni. | ![]() |
![]() |
Skjöldurinn er blár og gulur. Í honum eru stafirnir LUFC í sömu leturgerð og notuð var í “merki” félagsins 1971-73. Þar fyrir ofan er Yorkshire rósin. Á þessari mynd er hún aðeins hvít og blá. Árið 1999 var gerð lítilsháttar breyting þegar gula litnum var bætt í rósina. |
|
|
|
| Stuðningsmannaklúbbur Leeds á Íslandi á sitt eigið merki. Það er Leeds víkingurinn. Þessi víkingur er með ódrepandi áhuga á boltanum, klæddur í hvítan búning og með Leeds merkið á vinstra brjósti. Myndin skýrir sig sjálf. | ![]() |









