Búningarnir
Men In White BÚNINGARNIR
í öllum regnbogans litum
Í rúma fjóra áratugi lék Leeds United í bláum aðalbúningum, en varabúningurinn var hvítar treyjur og bláar buxur. Gælunafn félagsins var “The Peacocks” og þá voru varabúningar aðeins notaðir ef búningar andstæðingsins voru of líkir þeim bláa.
NÝR aðalbúningur var tekinn upp árið 1962. Hann var alhvítur og ekki leið á löngu þar til aðal gælunafnið var orðið “The Whites”. Varabúningurinn var gulur. Ef gult gekk ekki var spilað í rauðu og einn leikur var spilaður í orange lituðum treyjum.
Allar útfærslur hafa litið dagsins ljós: Einlitt, tvílitt, röndótt og tvískipt. Gult og blátt hafa verið ráðandi litir, en einu sinni var notað grænt í röndóttan búning. Í nokkrum leikjum hefur verið spilað í hvítum treyjum og bláum buxum, en þannig var jú varabúningurinn fyrir hálfri öld.
Aðalbúningi Leeds er eðlilega ekki breytt, aðeins gerðar nýjar útfærslur á þeim hvíta. Hins vegar hefur margoft verið gerð breyting á varabúningi félagsins.