LEEDS.IS

Fréttir
Klúbburinn
Félagið
Tenglar

Hringborðið
Leeds í beinni
Vissir þú...?
Staðan

Heim
 

KLÚBBSFRÉTTIR

GOLFMÓT 2009...
GOLFMÓT 2007...
Aðalfundur 2005...
Millwall - Leeds ferðasaga...
Hið árlega golfmót Stuðning...

Fleiri klúbbsfréttir
 

Nánar um klúbbsfrétt...

17.3.2005 - Millwall - Leeds ferðasaga

Uppúr kl. 1300 laugardaginn 5. mars var lagt af stað til Keflavíkur. Rúmlega 30 manna hópur úr Orkuveitu Reykjavíkur var á leiðinni út. Viðkomustaður var Cambridge í Englandi og hápunktur ferðarinnar Millwall ? Leeds á sunnudeginum í London. Reyndar vorum við einungis tveir sem fóru á þann leik, enda ekki heyglum hent að fá miða.

Ferðalagið gekk vel og var ófréttnæmt allt frá flugtaki í Keflavík til lendingar á Stanstead og rútuferðar til Cambridge. Hótelbarinn var strax testaður og sest var fyrir framan sjónvarpið þar því þar var verið að sýna svipmyndir úr leikjum dagsins, sem fóru allir fram meðan við vorum í háloftunum. Kvöldið var samt tekið tiltölulega rólega, farið á Pizza Hut við hliðina á hótelinu og stefnan sett á pöbbinn beint á móti (óþarfi að hreyfa sig of mikið fyrsta daginn). Við komum þangað kl. 23.01 og þá var búið að loka??og það á laugardagskvöldi! Enn við fundum næturklúbb skammt frá þar sem við kíktum inn??og fljótlega út aftur. Frekar súr staður, með technómúsik, lítið dansgólf, fólk standandi allt í kringum dansgólfið og kveikt á einum risaskjá þar sem verið var að endursýna Tottenham ? Southampton. Ekki þessi blanda sem maður á að venjast á næturklúbbum. En haldið var heim á hótelbarinn og setið þar aðeins frameftir við gítarsöng og stemmningu.

Herbergissíminn hringdi klukkan 0630 um morguninn. Eftir 10 hringingar höfðum við áttað okkur á hvaða hljóð þetta væri og höfðum rænu á að svara. Þá var þetta hótelstarfsmaður að ath. hvort það læki á baðherberginu okkar, en það var víst staðsett fyrir ofan matsalinn og það lak eitthvað niður. Svo var ekki.

Við vöknuðum óvenju snemma og vorum komnir í morgunmatinn fyrir kl. 0900 og aldrei hef ég séð jafnglæsilegt morgunverðarhlaðborð. Enskt borð með öllu mögulegu. Þetta myndi sóma sér sem gott kvöldverðarborð á flestum stöðum. Einnig voru rúnstykki, brauð og ávextir fyrir þá sem treysta sér ekki í 10.000 kalóríurnar fyrir kl. 9. Ég gerði það.

Ferð út á lestarstöð með Taxa tók skamma stund og fljótlega vorum við komnir upp í lest til London. Fyrsti bjór dagsins var opnaður þar, enda örlítill hausverkur frá kvöldinu áður til staðar en bjórinn sló á hann.

Við lentum á King´s Cross í London tæplega 11 og ákváðum að kíkja á borgina fyrir leik. Sökum lagfæringa í underground kerfinu í London virtust okkur allar leiðir ófærar og rúmlega klst. síðar, örlitlum göngutúr í Business hverfinu og einum McDonald vorum við aftur komnir á King´s Cross. Við ákváðum því að halda að London Bridge lestarstöðinni, sem var skammt frá. En við þurftum að taka stóran hring í kringum London til að komast þangað og tók sú ferð ca. 30 mín.

Okkur til mikillar gremju sáum við að við hefðum verið ca. 10 mín að labba í gegnum Business hverfið og endað á London Bridge.

Frá London Bridge lestarstöðinni var 5 mín. lestarferð á South Bermondsey lestarstöðina. Við ákváðum að tryggja okkur miða í tíma svo við lenntum ekki í röð þegar við færum úteftir. En þegar við komum á lestarstöðina blasti við okkur ótrúleg sjón. A.m.k. 50 löggur með 6 hunda. Engir stuðningsmenn voru hinsvegar sjáanlegir. Við keyptum miðan og héldum af stað í leit að pöbb. Fyrir utan stöðina voru tugir af löggum, nokkrar á hestum og enn fleiri hundar. Þeir voru greinilega reiðubúnir undir það vesta.

Við fengum okkur sæti á rólegum pöbb við Thames ánna og fengum okkur öl og horfðum á Leeds Tykes taka Irish í rúgbýinu. Engir stuðningsmenn voru sjáanlegir.

Við töltum til baka á lestarstöðina ca. klst. fyrir leik. Á leiðinni þangað sáum við magnaða sjón. 200-300 manna hópur Leedsara kom gangandi upp götuna í lögreglufylgd. Þeir gengu í ferhyrning, og löggur voru umhverfis allan ferhyrningin. Enginn fékk að sleppa úr fylgdinni og allt fór friðsamlega fram. Hópnum var fylgt á lestarstöðina og inní lest á völlinn. Löggunum á svæðinu hafði fjölgað og var örugglega um 200 manns. Við fórum í aðra lest og sluppum við lögreglufylgdina. Hinsvegar tóku ófáar lögreglur á móti okkur á stöðinni við Millwall völlinn. Þegar komið var útaf stöðinni var Millwall aðdáendum bent að halda áfram en við Leedsarar, gestirnir, fórum til hægri niður þröngan stíg sem var umlukinn 4 metra háum grindverkum með oddhvössum toppi svo illmögulegt væri að komast þar yfir. Heill haugur af löggum var á þessu svæði líka, þrátt fyrir að stuðningsmenn liðanna væru alveg aðskildir. Allur er varinn góður.

Gestirnir á Millwall vellinum fá sæti fyrir aftan annað markið og sátum við þægilega ofarlega og höfðum því gott útsýni yfir allan völlinn.

Fyrri hálfleikurinn var hálfdapur. Leedsarar byrjuðu örlítið betur en Millwall en heimamenn skoruðu engu að síður fyrsta markið eftir horn og hörmulega dekkningu hjá vörn Leeds. Eftir markið var allur vindur úr Leedsurum og þeir gátu einfaldlega ekki neitt það sem eftir lifði hálfleiks. Okkur til happs virtust Millwall menn sáttir með eins marksforystu og staðan var því 1-0 í hálfleik. Leeds stuðningsmenn byrjuðu gríðarlega hressir og var stemmningin mjög góð í upphafi leiks en dalaði aðeins eftir markið.

Leedsarar komu mun frískari til síðari hálfleiks og voru betra liðið í honum, en þrátt fyrir það fengu Millwall menn í raun betri færi, en náðu ekki að nýta þau. Stemmningin á Leedsurum jókst til muna og var orðinn ansi hreint mögnuð. Sérstaklega vakti athygli mína maður sem sat við hliðina á okkur, sem virkaði á mig sem bókhaldskennari eða endurskoðandi, en var blótandi liðinu í sand og ösku við hver mistök. Ansi skemmtilegur karakter. Á hina hönd okkar stóðu þrír félagar sem voru í skuggalegri kantinum, enda virtust þeir lítinn áhuga hafa á leiknum heldur fengu Millwall stuðningsmenn, sem höfðu plantað sér við enda stúkurnar, sem næst Leedsurunum alla þeirra athygla og gengu öskrin og níðsöngvarnir á milli. Leeds stuðningsmenn sýndu engu að síður góðan húmor þegar Millwall menn reyndu að æsa þá upp, að þessum þremur félögum frátöldum, sem voru ekki sáttir þegar einn Millwall manna renndi niður jakkann og sýndi Galatasary treyju sem hann var í innan undir.
En Leeds jók pressuna þegar líða tók á leikinn og náðu að skora gott mark þegar 12 mín. voru eftir og var þar að verki Rob Hulse sem gerði mjög vel þegar hann fékk sendingu inn í teiginn, snéri baki í markið og með menn í sér en náði að snúa sér og skjóta góðu skoti í bláhornið. Leeds héldu áfram að vera sterkara liðið en náðu ekki að skapa sér teljandi færi eftir markið og verður jafntefli að teljast sanngjörn úrslit.

Þegar leik var lokið var Leedsurum haldið á vellinum í rúmlega 30 mín. Að því loknu var okkur hleypt út í hollum á lestarstöðina. Persónulega leið mér eins og lambi á leið til slátrunar að labba þarna með 2500 leedsurum gegnum þröngan stíginn með grindverk á hvora lið. Einnig hugsa ég að ég hafi komist nær því en nokkru sinni fyrr að vita hvernig Gyðingunum leið hér um árið.

En okkur var semsagt smalað upp í lest til London Bridge. Þar ætluðum við út og ganga meðfram ánni, en okkur var ekki hleypt úr hópnum. Þurftum við því að ganga lestarstöðina með hjörðinni, að lestinni til King´s Cross þaðan sem lestir ganga til Leeds. Þar tókst okkur naumlega að sleppa frá því að fara í lestina og komumst úr fylgdinni. Ég verð að segja að eftir að hafa farið á á annan tug fótboltaleikja erlendis hef ég aldrei lennt í öðru eins

Ég ætla aðeins að fjalla um frammistöðu Leeds liðsins í leiknum.

Sullivan gat ekkert gert í markinu og bjargaði okkur nokkrum sinnum vel. Mjög góð frammistaða

Kelly átti frekar dapran dag. Nokkuð traustur varnarlega en ég skil ekki hversvegna hann tekur aukaspyrnur og horn liðsins því sendingageta hans er minniháttar. Fyrirgjafir hans, aukaspyrnur og horn voru allar máttlausar og sköpuðu enga hættu.

Butler virkaði á mig sem nokkrum kílóum of þungur og virtist ansi hægur, en hann les leikinn mjög vel og greip oft inní þegar stefndi í hættu. Nokkuð traustur í þessum leik.

Kilgallon verður klárlega farinn að spila í Premier League innan tveggja ára. Vonandi með Leeds. Hörkuvarnarmaður og rosalega traustur.

Gray gerði voða lítið. Var ekki jafn aktívur fram á við og oft áður. Mættum fá meira frá honum í þessum leik.

Lennon var án vafa maður leiksins hjá Leeds. Fékk 2 menn á sig í hvert skipti sem hann fékk boltann en náði oftast að gera eitthvað við hann. Einn á einn komst hann undantekningalaust framhjá manninum.

Sean Gregan er feitari en hann virðist í sjónvarpinu. Og hægari líka. Þó hann hafi 2-3 náð að skila boltanum vel frá sér og skapa hættu skapaði hann 20-30 sinnum hættu hinum megin með slökum sendingum og lélegum ákvörðunum. Hann gleymdi sér þegar Millwall skoraði markið.

Luke Walton var á fullu allan leikinn en var einhvernveginn aldrei í boltanum. Hann er mikið efni en hefur ekki það sem til þarf ennþá?..allavega ekki á miðjunni

Shaun Derry var eins og Walton á fullu allan leikinn og virðist hafa leikskilningin og reynsluna fram yfir Walton. Var meira í boltanum og stóð sig nokkuð vel.

Davið Healy var í felum á kantinum stóran hlut leiksins. Þegar hann kom sér í teiginn sá maður hvað hann er rosasterkur striker, en hann á ekki heima á kantinum. Hann er sennilega okkar besti maður en er rosalega illa nýttur.

Rob Hulse er gríðarlega sterkur framherji. Hann er ekkert tæknitröll og virkaði oft einmanna en kláraði markið rosalega vel.

Seth Johnson kom inná í leiknum. Hann gerði nú ekkert, en mikið var gott að sjá strákinn spila aftur.

Marlon King kom inná í sínum fyrsta leik og heillaði mig ekki. Stór og sennilega sterkur strákur, en hann notaði líkamann einstaklega illa og missti því boltann of oft, þegar hann var í mun betri stöðu að halda honum. Gerði lítið sem ekkert þann tíma sem hann spilaði.


ÁÞB

LEIKIRNIR

21.8.2010
Leeds - Millwall
 
3 - 1
24.8.2010
Leeds - Leicester
 
1 - 2
28.8.2010
Watford - Leeds
 
0 - 1
11.9.2010
Leeds - Swansea
 

Fleiri leikir
 

 

©2003-2010 - Allur réttur áskilinn. leeds.is - Stuðningsmannaklúbbur Leeds á Íslandi.
Allar ábendingar varðandi vefinn sendist á webmaster@leeds.is