![]() |
![]() ![]() |
![]() |
|
|
27.2.2010 - Sanngjarnt jafntefli
Huddersfield komst yfir á 14. mín. með skoti sem breytti um stefnu af varnarmanni. Þeir hefðu getað verið 2 mörkum yfir í hálfleik. Leedsarar komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og Howson jafnaði á 61. mín. Becchio kom Leeds yfir á 61. mín. en Huddersfield jafnaði 5 mín. fyrir leikslok. Sigurinn hefði getað lent báðu megin en jafntefli sanngjarnt. Alltaf erfitt fyrir Leeds að spila á heimavelli nágrannana í Huddersfield. Engin ást þar á milli. Næsti leikur er ekki fyrr en eftir viku, laugardaginn 6. mars gegn Brentford á Elland Road. Fyrsta skipti á þessu ári sem Leeds fær viku frí á milli leikja. Leeds lék 7 leiki í janúar og 8 leiki í febrúar. Mars-mánuður verður mjög rólegur, aðeins 5 leikir. Þess má geta að allir leikmennirnir tókust í hendur fyrir leikinn. Lið Leeds United í dag: Ankergren, Hughes, Naylor, Kisnorbo, Lowry, Snodgrass, Doyle, Howson, McSheffrey, Beckford, Becchio.
Steini
|
|
||||||||||||||||||||
|
©2003-2010 - Allur réttur áskilinn. leeds.is - Stuðningsmannaklúbbur Leeds á Íslandi.
Allar ábendingar varðandi vefinn sendist á webmaster@leeds.is |