![]() |
![]() ![]() |
![]() |
|
|
18.2.2010 - Leeds 1 Walsall 2
Árið 2010 byrjaði vel hjá Leeds. Sigur gegn manchester united á útivelli 3. jan. í FA-Cup. Síðan hefur ekkert gengið í deildinni. Aðeins einn sigur í sjö leikjum. Á þriðjudag tapaði Leeds á Elland Road fyrir Walsall, fyrsta tapið á heimavelli í deildinni síðan jan, 2009. Leeds er í 2. sæti í deildinni, en Colchester er í 3. sæti aðeins 3 stigum á eftir en Leeds hefur leikið einum leik færri. Leeds á heimaleik gegn Brighton, laugardaginn 20. febr. og heimaleik gegn Oldham 23. febr. Velgengnin í bikarkeppnunum undanfarið er kannski farin að segja til sín; Leeds hefur leikið 9 leiki í desember, 8 leiki í janúar og eru búnir að leika 5 leiki um miðjan febrúar og eiga eftir 3 leiki í febr. Það er auðvitað mikils virði að vinna á old trafford, en meginmarkmiðið er að komast upp úr þessari deild. Kisnorbo hefur verið meiddur en er byrjaður að æfa og gæti verið með gegn Brighton á laugardag.
Steini
|
|
||||||||||||||||||||
|
©2003-2010 - Allur réttur áskilinn. leeds.is - Stuðningsmannaklúbbur Leeds á Íslandi.
Allar ábendingar varðandi vefinn sendist á webmaster@leeds.is |