![]() |
![]() ![]() |
![]() |
|
|
8.2.2010 - Hartlepool 2 - Leeds 2
Leeds virtist vera að sigra Hartlepool, á laugardag, staðan 2-1 og 3 mín. komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Bromby brýtur klaufalega af sér og þeir jafna með skalla á fjærstöng eftir aukaspyrnuna. Sekúndum síðar er flautað til leiksloka. Becchio skoraði bæði mörk Leeds og átti auk þess skalla í þverslá. Leeds hefur gengið illa í deildinni í janúar og febrúar, aðeins einn sigur í fimm leikjum. Beckford fór af velli í hálfleik meiddur og er tæpur fyrir leikinn gegn Carlisle á morgun þriðjudag, í JPT-bikarnum. Þetta er seinni leikur liðanna en Carlisle vann fyrri leikinn 2-1 á Elland Road. Það lið sem sigrar kemst í úrslitaleikinn á Wembley. Leikurinn verður sýndur beint í Ölveri og hefst kl. 19:00.
Steini
|
|
||||||||||||||||||||
|
©2003-2010 - Allur réttur áskilinn. leeds.is - Stuðningsmannaklúbbur Leeds á Íslandi.
Allar ábendingar varðandi vefinn sendist á webmaster@leeds.is |