Archive for February 2012
Portsmouth 0-0 Leeds United
Fyrsti leikur Neil Warnock sem stjóri Leeds endaði með 0-0 jafntefli gegn baráttuglöðum Portsmouth mönnum.
Ross McCormack var næstur því að skora þegar hann átti skot í slánna sem síðan skoppaði á marklínunni.
Robert Snodgrass skallaði inn frákastið en hann var dæmdur rangstæður.
Leeds eru 4 stigum frá umspilssætum en Portsmouth duttu niður fyrir Coventry í 23.sæti í deildinni.
Leeds lentu í áfalli þegar að Alex Bruce þurfti að fara útaf meiddur eftir 11 mínútur, en Leigh Bromby kom í hans stað.
Bæði lið áttu erfitt með að skapa sér alvöru færi, en Leeds komust nálægt því að skora þegar að Snodgrass átti skot sem Stephen Henderson varðifrábærlega.
Henderson varði síðan vel frá Luciano Becchio áður en að Michael Brown átti skot yfir á 94.mínútu en hvorugt liðið náði að skora.
Um leikinn
Portsmouth
- 13 Henderson
- 02 Ward
- 03 Rocha
- 05 Pearce
- 15 Halford
- 26 Ben-Haim
- 04 Mokoena
- 08 Mullins
- 16 Allan (Norris – 76′ )
- 20 Thorne
- 09 Futacs (Mwaruwari – 76′ )
Varamenn
- 01 Ashdown
- 31 Webster
- 19 Norris
- 17 Harris
- 25 Mwaruwari
Leeds United
- 01 Lonergan
- 04 Bruce (Bromby – 11′ )
- 22 Lees
- 28 White
- 48 O’Dea
- 08 Brown
- 15 Clayton
- 16 Pugh
- 10 Becchio
- 23 Snodgrass
- 44 McCormack
Varamenn
- 26 Bromby
- 29 Thompson
- 11 Sam
- 09 Paynter
- 18 Forssell
Dómari: Phil Gibbs
Áhorfendur: 17,571
Upphitun fyrir Portsmouth – Leeds United
Liðsfréttir
Portsmouth
Michael Appleton er í basli með að velja lið þar sem Dave Kitson er í banni og einnig vantar töluvert fleiri leikmenn í lið Portsmouth.
Markahæsti leikmaður Portsmouth Erik Huseklepp fór til Birmingham til að létta af fjárhagsvandamálum félagsins.
Leeds
Neil Warnock er að fara að stýra sínum fyrsta leik fyrir Leeds en hann verður án Robbie Rogers sem fékk heilahristing í síðasta leik.
Varnarmennirnir Paul Connolly og Leigh Bromby og framherjarnir Ramon Nunez og Billy Paynter gætu snúið aftur.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Leeds hefur unnið 23 leiki liðanna á meðan Portsmouth hefur unnið 18, en liðin hafa mæst 57 sinnum í deild og bikar. Portsmouth hefur hins vegar skorað 92 gegn 91 marki Leeds.
• Leeds vann sinn fyrsta deildarsigur gegn Portsmouth í 11 ár þegar þeir unnu 1-0 á Elland Road í október.
• Portsmouth hefur unnið 2 og gert 3 jafntefli í síðustu 5 heimaleikjum gegn Leeds, en Leeds vann síðast á heimavelli Portsmouth árið 1986.
Portsmouth
• Portsmouth eru í vandræðum en þeir hafa ekki unnið í 4 leikjum ásamt því að þeir misstu 10 stig þegar þeir fóru í greiðslustöðvun, en þetta þýðir að þeir eru dottnir niður í fallsæti.
• Portsmouth hefur aðeins fengið 1 stig af síðustu 12 mögulegum og aðeins unnið einu sinni í síðustu 8 leikjum.
• Eftir að Appleton, þjálfari Portsmouth tók við hafa þeir unnið 4, gert 4 jafntefli og tapað 7.
Leeds United
• Neil Warnock mun velja sitt fyrsta Leeds lið en þeir geta unnið 5.leikinn sinn í 9 leikjum og unnið 2 leiki í röð í fyrsta skipti síðan í byrjun desember.
• Leeds hefur unnið alla 6 leiki sína á tímabilinu þar sem þeir hafa haldið hreinu.
• Leeds hefur fengið 20 stig úr leikjum á þessu tímabili þar sem þeir hafa lent undir. Aðeins Blackpool hefur fengið fleiri stig eftir að hafa lent undir eða 23.
Leeds United 3-2 Doncaster Rovers
Luciano Becchio skoraði dramatískt sigurmark þegar komið var langt framyfir 90 mínútur. Neil Warnock nýráðinn þjálfari Leeds var meðal áhorfenda.
Það var fátt sem benti til þess að Leeds væri að fara að vinna þegar að Mamadou Bagayoko skoraði fyrstu 2 mörk leiksins fyrir Doncaster.
Heimamenn minkuðu hinsvegar muninn í næstu sókn þegar að Andros Townsend skoraði sitt fyrsta mark fyrir Leeds.
Adam Clayton jafnaði síðan leikinn áður en að Becchio skoraði á 99.mínútu og tryggði Leeds mikilvæg 3 stig.
Uppbótartíminn var lengdur þar sem að Tommy Spurr og Robbie Rogers lentu í ljótu samstuði.
Það dugði Becchio til að skora sigurmarkið og að koma Leeds í 10.sæti deildarinnar.
En það var meiri dramatík í lokin þegar að menn byrjuðu að ýta hvorum öðrum á leiðinni í búningsklefana.
Þetta var fullkominn leikur fyrir Warnock sem var fenginn til Leeds til að leysa Simon Grayson af þangað til eftir 2012/2013 tímabilið, eftir að hafa fundað með Ken Bates í Mónakó á föstudaginn.
Warnock talaði við leikmennina fyrir leik og í hálfleik í síðasta leik sem Neil Redfearn þjálfaði.
En leikurinn byrjaði alveg hræðilega fyrir Leeds þar sem að Doncaster komst verðskuldað yfir þegar að James Hayter komst einn gegn Lonergan, Lonergan varði en boltinn hrökk á Bagayoko sem skoraði af öryggi.
Bagayoko kom Doncaster síðan í 0-2 í síðari hálfleik þegar að hann potaði boltanum inn eftir góðan undirbúning El-Hadj Diouf og Spurr.
Aðdáendur Leeds reiddust heldur betur eftir þetta, en leikmenn Leeds náðu að þagga niður í þeim reiðisröddum þegar að Townsend skoraði með góðu skoti framhjá Button í markinu aðeins mínútu eftir að Doncaster komst í 0-2
Leeds voru byrjaðir að stjórna leiknum núna og jöfnuðu þegar að Robert Snodgrass átti fyrirgjöf sem Clayton kláraði virkilega vel.
En þetta voru ekki lokin á dramatíkini þar sem Leeds krækti í ólíklegan sigur á 99.mínútu. Becchio skoraði við vítateigslínuna og hljópu allir til Readfern til að fagna.
Doncaster er hinsvegar ennþá á botninum og hafa ekki unnið í síðustu 5 og ekki síðustu 8 á útivelli.
Um leikinn
Leeds United
- 01 Lonergan
- 04 Bruce
- 22 Lees
- 28 White
- 48 O’Dea
- 15 Clayton
- 16 Pugh (Gult Spjald) (Brown – 60′ )
- 17 Townsend (Rogers – 79′ )
- 10 Becchio
- 23 Snodgrass (Gult Spjald)
- 44 McCormack
Varamenn
- 24 Taylor
- 02 Connolly
- 08 Brown
- 06 Rogers (Forssell – 90′ )
- 18 Forssell
Doncaster Rovers
- 47 Button
- 11 Lockwood
- 14 Spurr (O’Connor – 90′ )
- 21 Hird
- 39 Chimbonda
- 08 Stock
- 17 Barnes
- 18 Gillett
- 12 Hayter (Robert – 89′ )
- 19 Diouf
- 45 Bamogo (Bagayoko – 25′ )
Substitutes
- 02 O’Connor
- 04 Martis
- 16 Oster
- 22 Robert
- 49 Bagayoko
Dómari: Stroud
Áhorfendur: 21,181
Upphitun fyrir Leeds United – Doncaster Rovers
Liðsfréttir
Leeds
Fabian Delph meiddist á ökla gegn Coventry og verður ekki með.
MIchael Brown eða Andros Townsend gætu komið í staðin. Andy O’Brien er einnig að reyna að koma sér í byrjunarliðið.
Doncaster
Martin Woods og Fabien Robert gætu komið til baka eftir meðsli.
Habib Beye er í banni og David Button hledur líklegast áfram í markinu.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Leeds geta unnið sinn 10 leik af 20 gegn Doncaster. Doncaster hafa unnið 3 og 7 sinnum hafa liðin gert jafntefli.
• Leeds getur unnið 3. deildarleikinn í röð gegn Doncaster. Þeir hafa skorað 8 mörk í síðustu 2
• Doncaster hefur aðeins einu sinni unnið á Elland Road en það var árið 2008
Leeds United
• Leeds eru 6 stigum frá umspilssæti, þeir hafa tapað 3 af síðustu 4 leikjum, og geta tapað 3 í röð í annað skipti í síðustu 11 leikjum.
• Leeds hefur skorað í öllum leikjum sínum árið 2012 og þurfa 1 í viðbót til að skora 50 deildarmörk.
• Þeir hafa unnið alla 6 leiki sína þar sem þeir hafa haldið hreinu.
Doncaster Rovers
• Doncaster eru aftur dottnir niður í neðsta sætið og hafa ekki unnið í síðustu 4 leikjum. Þeir hafa aðeins einu sinni unnið í síðustu 7.
• Doncaster hafa ekki unnið í síðustu 7 leikjum á útivelli og aðeins fengið 1 stig af síðústu 21 mögulegum síðan þeir unnu Ipswich 3-2 á Portman Road 5.nóvember.
• Doncaster hefur aðeins skorað opnunarmarkið í 8 af 29 leikjum sínum á tímabilinu.
Neil Warnock nýr stjóri Leeds
Neil Warnock hefur verið ráðinn þjálfari hjá Leeds og gildir samningur hans út næstu leiktíð. hann var nýlega rekinn frá QPR eftir að hafa komst upp um deild með þá síðasta vor með glæsilegum sigri í Champions deildinni.
Warnock var búinn að vera talinn af veðbönkum líklegastur til að taka við starfinu enn einnig voru nefndir Mick MCcarthy og Lee Clark. Einnig var Neil Redfearn sem tók tímabundið við Grayson talinn líklegur enn tvö töp í þremur leikjum hjálpaði honum ekki að fá starfið.
Warnock á glæsilegann feril að baki í að koma liðum upp um deild enn hann hefur komið liðum upp 7 sinnum í gegnum tíðina. Hann er mikill skaphundur og hefur ekki átt gott samtarf við stuðningsmenn Leeds í gegnum tíðina en hann er hörku neðrideildar þjálfari sem skilar árangri og það er það sem við þurfum…….MOT






