Gakktu í klúbbinn!
Ef þú skráir nafn þitt og netfang í gluggana hér að neðan þá skráir þú þig í stuðningsmannaklúbb Leeds á Íslandi.

Spurningin
Sorry, there are no polls available at the moment.

Author Archive

Spurningin

Spurt var: Kemst Leeds í Play-Offs?

63 svöruðu, 35 voru bjartsýnir og sögðu já, en 28 höfðu rétt fyrir sér og sögðu nei.

Enn eitt tímabil vonbrigða fyrir stuðningsmenn Leeds United er að baki, liðið hafnaði í 14. sæti og tapaði 11 leikjum á Elland Road, sem er félagsmet sem enginn vildi slá.

Leedsklúbburinn á Íslandi fór eina skipulagða ferð á Elland Road, í byrjun desember og hitti á magnaðan leik. 2-0 sigur á Millwall, en það sem yfirgnæfði allt saman var heiðurinn sem Gary Speed var sýndur, bæði fyrir leik og á leiknum, en hann hafði fallið fyrir eigin hendi viku áður. Algjörlega ógleymanlegt, þegar 32.000 stuðningsmenn Leeds sungu nafn hans allan tímann. Vonandi tekst Warnock að búa til lið sem kemur okkur upp um deild að ári, hinir frábæru stuðningsmenn Leeds United eiga það skilið!

Leeds í beinni á föstudag

Leikur Reading og Leeds á föstudaginn langa, 6. apríl, verður sýndur beint í Ölveri, Glæsibæ og hefst kl. 13:00.

Leeds í beinni í dag!!!!

það var að koma í ljós rétt áðan að leikur Leeds gegn West Ham í dag verður sýndur beint í Ölveri, Glæsibæ og hefst kl. 15:00.

Leeds í beinni á sunnudag

Leikur Middlesboro og Leeds á  sunnudag verður sýndur beint í Ölveri, Glæsibæ og hefst kl. 12.15.

Middlesboro er í 4. sæti með 59 stig, en Leeds er í 10. sæti með 50 stig.

Leeds í beinni á laugardag

Leikur Leeds gegn toppliði Southampton á laugardaginn verður í beinni útsendingu í Ölveri, Glæsibæ og hefst kl. 17:20

Spurningin

Spurt var: Hvern viltu  fá sem næsta stjóra Leeds United?

26 svöruðu:

Neil Warnock: 9 atkvæði.

Alan Curbishley: 7 atkvæði

Neil Redfearn: 4 atkvæði

Lee Clark: 4 atkvæði

Billy Davies: 2 atkvæði.

Hinn umdeildi Neil Warnock er næsti stjóri Leeds United.