Author Archive
Tom Lees skrifaði undir samning..
Varnarmaðurinn ungi Tom Lees hefur skrifað undir nýjan 4 ára samning sem eru gleðitíðindi fyrir klúbbinn, hann er búinn að koma við sögu í 7 leikjum á tímabilinu, í byrjunarliðinu í þeim flestum og er búinn að festa sig í sessi í hægri bakverðinum sem er samt ekki hans upprunalega staða sem er í miðri vörninni. Síðustu 2 ár er hann búinn að spila nærri 100 leiki á láni hjá Accrington Stanley og Bury og öðlaðist mikla reynslu þar.
Einnig hefur Leeds gefið það út að þeir séu að bjóða mikilvægum leikmönnum samning s,s. Jonny Howson, Ramon Nunez, Lloyd Sam, Ben parker og Aidy White en allir þessir samningar renna út eftir þetta tímabil
Andy Lonergan
Leeds hefur keypt markmanninn Andy Lonergan frá Preston North End fyrir 200.000 pund.
Lonergan hefur spilað yfir 200 leiki fyrir Preston á 11 ára tímabili, þessi viðskipti hafa átt sér langann aðdraganda en gengu loksins í gegn og segir Simon Grayson að Andy hafi alltaf verið hans fyrsti kostur í að fylla skarðið sem Schmeichel skyldi eftir sig.
Einnig er vert að nefna að 2 menn fara með til Noregs í æfingaferð til að reyna að sanna sig frekar en það eru kantmaðurinn Alex Mendy sem er 27 ára gamall frakki og vinstri bakvörðurinn Boldiszar bodor sem er 29 ára Ungverji, 2 aðrir eru á reynslu, Isaiha Osbourne verður eftir og vinnur í forminu hjá sér en Jlloyd Samuel er meiddur og fer ekki með.
Næsti leikur er gegn Sandefjord á þriðjudaginn.
Undirbúningstímabilið hafið
Leeds er búið að vera í Skotlandi í nokkra daga við æfingar og tók á móti Falkirk í gærkveldi og sigruðu þann leik 0-2, Ramon Nunez var af flestum tallinn hafa verið besti maður liðsins.
Fyrsta markið var sjálfsmark og það síðara var skalli hjá Snoddgras
Lið Leeds var svona skipað:
Rachubka (Cairns 63), Connolly (Bromby 46), Kisnorbo (Lees 63), Lees (Bruce 46), Parker (White 46), Snodgrass (Thompson 63), Clayton (N Turner 63), Brown (Howson 46), Sam (L Turner 63), Paynter (Gradel 46), Nunez (McCormack 46).
á vellinum voru 2,065 þar af 772 Leedsarar
Næsti leikur er á móti Motherwell á laugardaginn.
Patrick Kisnorbo skrifar undir
Paddy Kisnorbo hefur skrifað undir 2. ára samning sem eru miklar gleðifréttir fyrir klúbbinn, Paddy var valinn leikmaður ársins leiktíðina 2009/2010, hann er búinn að vera meiddur í hásin í 14 mánuði en er kominn á fullt skrið.
Simon Grayson sagði að allir hjá klúbbnum væru ánægðir að hann verði árfam og að hann væri búinn að eiga erfiða tíma vegna meiðslana en allir vissu hvers megnugur hann væri og hvað hann færði liðinu.
Slúðrið…..
Preston North End samþykkti 200.000 punda boð Leeds United í markvörðinn Andy Lonergan í vikunni en slúðrið segir að samningaviðræður hafi slitnað þegar farið var að ræða launamálin, og er talið að hann sé við það að ganga til liðs við Everton.
Simon Grayson sagði í vikunni að Jerzy Dudek væri einn af þeim markmönnum sem Leeds hefði áhuga á.
Einnig sagði Grayson að hann hefði mikinn áhuga á að fá Eric Lichaj aftur að láni frá Aston Villa alla næstu leiktíð, hann átti góða spretti á síðustu leiktíð og yrði mjög vinsælt á meðal stuðningsmanna ef Grayson fengi hann aftur.
Annar markvörður, David Stockdale hjá Fulham hefur verið orðaður tvisvar við Leeds á 3 vikum.
Kantmaðurinn Gary Roberts hjá Huddersfield Town hefur verið orðaður við sölu til Leeds að verðmæri 350.000 pund en Crystal Palace er einnig á eftir honum.
Adam Le Fondre, sóknarmaður hjá Rotherham United er einnig orðaður við Leeds, þessi 24 ára gamli leikmaður hefur sett inn 50 mörk á tveimur leiktíðum.
Í síðustu viku bárust fréttir af því að Crystal Palace væri á höttunum eftir Patrick Kisnorbo en hann er á mjög stuttum samning hjá Leeds vegna erfiðra meiðsla sem hann varð fyrir, en ekkert hefur heyrst meira um það og er Kisnorbo mættur til æfinga hjá Leeds og er byrjaður að vinna í því að koma sér í form og vinna sér inn nýjan samning, sem eru gleðifréttir enda klassa varnarmaður þar á ferð.
Leikmannamál
- Neil Kilkenny hefur samið við Bristol City til þriggja ára eftir að samningur hans við Leeds rann út, hann kom frá Birmingham í janúar 2008 á 150 þúsund pund og spilaði 144 leiki fyrir Leeds.
- Kasper Schmeichel samdi við Leichester City eftir að Leeds tók boði frá þeim sem er talið hljóða upp á 1,5 miljón punda, spilaði hann 40 leiki fyrir Leeds á sinni einu leiktíð, hann gerði 3 ára samning við Leicester.
- Richard Naylor var ekki boðinn samningur eftir að hans rann út í sumar og er talið að hann sé alveg við það að ganga í raðir Doncaster Rovers, hann er að taka þjálfara réttindi í þeirri von um að snúa til baka til Leeds í framtíðinni.
- Paul Rachubka hefur gengið til liðs við Leeds og samdi til 2 ára, hann er 30 ára gamall og kemur frítt frá Blackpool, Simon Grayson fékk hann til liðs við sig þegar hann stýrði Blackpool og var hluti af því þegar þeir unnu sig upp um 2 deildir á 2 árum, hann var valinn leikmaður ársins hjá Blackpool leiktíðina 2007/08.


