Author Archive
Hreinsun……
Neill Warnock birti í dag lista yfir þá leikmenn sem eru ekki í hans plönum fyrir næstu leiktíð.
Byrjunarliðsmenn sem verða settir á sölulista eru:
- Adam Clayton
- Ramon Nunez
- Billy Paynter
- Paul Connolly
- Andy O´Brian
- Paul Rachubka
Síðan eru það leikmennirnir sem renna út á samning í sumar og fá ekki endurnýjun
- Alex Bruce
- Lloyd Sam
- Mikael Forssel
- Danny Webber
- Maik Taylor
Fyrir voru þeir Ben Parker og Mika Vayrynen leystir undan samning og Darren O´Dea og Paul Robinson fóru til baka til sinna liða eftir lánssamning í vetur.
Þetta er ágætis hreinsun hjá Warnock og verður forvitnilegt að fylgjast með leikmannamálum í sumar. MOT
Neil Warnock nýr stjóri Leeds
Neil Warnock hefur verið ráðinn þjálfari hjá Leeds og gildir samningur hans út næstu leiktíð. hann var nýlega rekinn frá QPR eftir að hafa komst upp um deild með þá síðasta vor með glæsilegum sigri í Champions deildinni.
Warnock var búinn að vera talinn af veðbönkum líklegastur til að taka við starfinu enn einnig voru nefndir Mick MCcarthy og Lee Clark. Einnig var Neil Redfearn sem tók tímabundið við Grayson talinn líklegur enn tvö töp í þremur leikjum hjálpaði honum ekki að fá starfið.
Warnock á glæsilegann feril að baki í að koma liðum upp um deild enn hann hefur komið liðum upp 7 sinnum í gegnum tíðina. Hann er mikill skaphundur og hefur ekki átt gott samtarf við stuðningsmenn Leeds í gegnum tíðina en hann er hörku neðrideildar þjálfari sem skilar árangri og það er það sem við þurfum…….MOT
Skoðanir Ken Bates
Hér að neðan er lausleg þýðing af viðtali sem var tekið við Ken Bates, Seinni partinn í dag á Yourkshire Radio.
Þar fer hann í það afhverju hann rak Simon Grayson í dag úr stjórastólnum.
Þó að um lauslega þýðingu sé að ræða þá er orðalagið hjá Bates á köflum skrýtið enda er hann stórfurðulegur.
Í fyrsta skipti sem ég sagði nei við leikmanni sem Simon vildi kaupa var síðasta fimmtudag þegar hann langaði í leikmann sem var að fara að kosta okkur £ 600.000 á ári. Ég sagði, “þú hefur þegar sex miðverði og hefur sjálfur fengið þá alla.
” við höfum sennilega stærsta hópinn í deildinni, stærri hóp en mörg félög í ensku úrvalsdeildinni. Launa fjárhagsáætlun okkar var 9.500.000 £ á þessu ári og við höfum eytt yfir 12.000.000 £. Svo þetta fólk sem er ásaka mig fyrir úrslit vita ekki hvað þeir eru að tala um.
“Sérhver eyri sem við höfum fengið frá sölum flytja hefur farið aftur í liðið í formi kaupa eða launakostnaðar“.
“Ef þú færð leikmann á frjálsri sölu á £ 500.000 á ári á þriggja ára samning sem gerir 1.500.000 £, sem eru gríðarmikið magn af peningum.
“Við höfum sex framherja og sex miðverði og allt í einu sem ég get ekki skilið hvers vegna eru þeir ekki nógu góðir. Við höfum þrjá unglinga í fjórum öftustu stöðunum.
“Hann er stjórinn og hann ákveður það sem hann vildi kaupa. Við sem klúbbur og ég sem formaður heimiliðum það bara. ég borga bara. Staðreyndir málsins eru þær að við höfum fengið á okkur fleiri mörk en næstum allir aðrir Championship deildinni . Þess vegna höfum við náð eins langt og við getum í núverandi kerfi.
“Við eigum átján leiki eftir, níu heima og níu úti. Við getum enn náð inn í play-offs. Ég held að það sé fjarlægur draumur að fara beint upp. Ég held að við þurfum nýtt upphaf, nýtt viðhorf og við munum halda áfram . ”
Simon sagði við mig í nóvember að við værum að fara upp. Þessir leikmenn hafa ekki orðið slæmir leikmenn á einni nóttu.
“Það var vandamál einhvers staðar og við vissum ekki hvað það var. Ég er svolítið vonsvikinn hvað Simon sagði eftir síðata leik, þegar hann sagði að hann væri að vinna innan fjármála þvingana, Jesús, hann eyddi næstum 30% yfir fjárhagsáætlun í laum laikmann. Sumir eru að tuða um láns leikmenn. Hver skoraði sigurmarkið gegn okkur þegar það var spilað á Emirates? Það var láns leikmaður. Thierry Henry.
“Það er ekki spurning um peninga við eyðum, það er gæði leikmanna sem þú færð. Hann er kostaði ekki neitt. Eigum við að borga 35.000.000 £ í Carroll eða 50.000.000 £ í Torres? Svo peningar þýða ekki neitt. mikilvægi hluturinn eru gæðin og gildin fyrir peningana. Það sem ég skil ekki er hvers vegna við erum þar sem við erum með það sem við höfum eytt.
“ekki gleyma, þegar við vorum niðurlægðir af Barnsley 4-1. Var launakostnaðar þeirra £ 4.500.000 og okkar var 11.500.000 £, þannig að við vorum greinilega ekki að fá gæðin fyrir peningana. Þannig að núverandi kerfi er ekki að virka og við þurfum nýtt útlit. þakka þér Símon fyrir það sem þú hefur gert og einnig aðstoðarmenn hans tveir en við verðum að halda áfram. “
Simon Grayson Rekinn!!!!!!
Simon Grayson var nú rétt í þessu rekinn frá Leeds United eftir hræðilegt 1-4 tap á Elland Road í gærkveldi.
„Við teljum að þessar breytingar hafi þurft að gera til að fá meira út úr liðinu,” þetta sagði Shaun Harvey stjórnarformaður Leeds
Neil Redfern unglingaþjálfari mun þjálfa liðið þar til nýr þjálfari verður ráðinn.
það verður komið með nánari fréttir af þessu síðar.
Leikmannamál..
Nú er félagaskiptaglugginn opinn og það er margt að frétta hjá Leeds eins og hjá flestum liðum.
Kantmaðurinn Robbie Rogers, 24 ára Bandrarískur landsliðsmaður hefur samið vil Leeds til 18 mánaða, hann spilaði með Columbus Crew þar vestra en varð samningslaus í desember, einhver bið var eftir atvinnuleyfi enn það gekk eftir.
Fabian Delph sem allir Leedsarar ættu að kannast við er kominn aftur til okkar á láni frá Aston Villa í einn mánuð en bæði Leeds og Delph sjálfur vilja að lánið verði út leiktíðina
Jonathan Howson var seldur til Norwich á 2 miljónir punda, hann hefði orðið samningslaus í sumar og var seldur núna til að fá einhvern aur fyrir hann, það eru margar skiptar skoðanir á þessari sölu sem er skiljanlegt því þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem að leeds er í vandræðum að semja við leikmenn að nýju, í framhaldi af þessari sölu þá var boðað til mótmæla fyrir utan Elland Road til að mótmæla eignarhaldi Ken Bates og hvernig hann rekur klúbbinn.
Ben Parker fór til Carlisle á eins mánaðar samning, vonandi kemst hann í leikform þar.
Meiðsli og samningar
Patrick Kisnorbo verður frá allt tímabilið eftir að hafa meiðst á hné í Burnley leiknum. þetta eru önnur alvarlegu meiðslin hans á stuttum tíma, hann sleit hásin í mars 2010 og var frá í 14 mánuði, hann fékk 2. ára samning í sumar eftir að hafa sýnt Grayson fram á að hann væri kominn í form en síðan þá hefur hann ekki verið sérstakur inni á vellinum, því miður.
Leeds mátti nú ekki við þessum meiðslum enda er meiðslalistinn töluvert langur,
- Ben Parker, er enn að jafna sig eftir stanslaus meiðsli síðustu 2 ár
- Tom Lees er að jafna sig eftir heilahristing, byrjaður að æfa
- Leigh Bromby, ökklameiðsli, tilbúinn erftir 2-3 vikur
- Alex Bruce er tognaður
- Robert Snodgrass fór í hálskyrtlatöku og er búinn að missa af síðustu tveimur leikjum en er vonast eftir honum í Palace leikinn 14 jan
- Jonny Howson er meiddur á hné og verður frá í einhverja mánuði
- Davide Somma er byrjaður að æfa aftur eftir erfið og löng meiðsli en það er ekki búist við honum strax í hóp
Síðan er Andy O’Brian sem spilar aldrei aftur fyrir Leeds vegna deilna við Simon Grayson, þannig að hópurinn er að þynnast.
Leeds samdi í gær við varamarkvörðinn Maik Taylor út leiktíðina og fyrr í vikunni sömdu þeir við Danny Pugh en hann er búinn að vera á láni í vetur og spila 17 leiki og standa sig ágætlega.







