Author Archive
Reading 2-0 Leeds United
Reading komst á topp deildarinnar með sigri á baráttuglöðum Leedsurum sem voru manni færri stærsta hluta leiks.
Fyrri hálfleikurinn var mjög harður og fékk Zac Thompson beint rautt spjald fyrir að hamra Jobi McAnuff niður eftir aðeins 13 mínútur.
Leedsarar gerðu vel í að pirra heimamenn og voru nálægt því að skora þegar að McCormack setti hann í stöngina og klúðraði siðan Snodgrass virkilega góðu færi.
En Le Fondre sem kom inná sem varamaður náði að skora tvö mörk seint í leiknum.
Þetta var virkilega erfiður sigur hjá Reading gegn Leeds sem voru mjög baráttuglaðir. En þeir geta svo gott sem gleymt umspilssæti núna.
Reading hefðu getað komist yfir í fyrri hálfleik með sköllum frá Noel Hunt og Kaspars Gorkss, áður en að Thompson sem er aðeins 19 ára fékk rauða spjaldið.
Ian Harte átti síðan sendingu inn í teig sem að flaug í stöngina.
Leeds voru síðan heppnir að fá ekki annað rautt þegar að Danny Pugh kom með hræðilega tæklingu á Jem Jaracan, mun verri tækling heldur en sú sem að Thompson fauk útaf fyrir.
Liðin
Reading: Federici, Cummings, Pearce, Gorkss, Harte, Kebe, Karacan (Robson-Kanu 40), Leigertwood, McAnuff, Roberts, Hunt (Le Fondre 69), Robson-Kanu (Mullins 90)
Varamenn: McCarthy, Church.
Mörk: Le Fondre 84, 90.
Leeds: Lonergan, Bromby, Bruce, Lees, Robinson, Snodgrass (Webber 85), Brown, Thompson, Pugh, McCormack (Rogers 85), Becchio (Forssell 87).
Varamenn: Paynter, Taylor.
Rautt: Thompson (12).
Gul spjöld: Robinson, Becchio, Pugh.
Áhorfendur: 22,775
Dómari: Darren Drysdale
Liðsfréttir
Zac Thompson og Leigh Bromby gætu komið til baka þar sem bæði Darren O’Dea og Paul Connolly eru í banni.
Adam Clayton er líka í banni á meðan að Aidy White verður að öllum líkindum ekki meira með á tímabilinu vegna meiðsla.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Leeds hefur unnið tvöfalt fleiri leiki heldur en þeir hafa tapað gegn Reading en þeir hafa unnið sex, tapað þrem og gert sex jafntefli í 15 leikjum.
• Reading unnu 1-0 á Elland Road þegar að Simon Church skoraði eina markið. Reading getur því unnið Leeds töfallt í fyrsta skipti.
• Leeds hefur ekki skorað mark í síðustu fjórum leikjum gegn Reading.
Leeds United
• Leeds eru í 10.unda sæti, sex stigum frá umspili, en þeir geta unnið fjórða leikinn sinn í 12 leikjum.
• Leeds hefur ekki tapað né fengið á sig mark á útivelli eftir að Neil Warnock tók við og geta þeir unnið þriðja útileikinn í röð.
• Fái Leeds þrjú stig úr leiknum, verður það 500. stig Leeds á útivelli í sögunni í deildinni.
Leeds United 0-2 Watford
Tvenna frá Chris Iwelumo var nóg til að sigra Leeds og hafa Watford ekki tapað í sjö leikjum í röð.
Hinn 33 ára kom Watford yfir eftir aðeins fimm mínútur, þá skoraði hann eftir sendingu frá Troy Deeney
Hann skoraði síðan annað markið eftir skot frá Deeney.
Paul Connolly fékk síðan annað gula spjaldið sitt í uppbótartíma. Leeds hefur nú ekki unnið í fjórum leikjum í röð á Elland Road.
Iwelumo hafði aðeins skorað eitt mark fyrir Watford fyrir leikinn, en það tók hann ekki langan tíma að tvöfalda það.
Báðir markmennirnir þurftu að verja nokkrum sinnum og varði Lonergan tvisvar frá Deeney. Tomasz Kuszczak varði síðan vel frá Snodgrass hinum megin.
Kuszczak varði síðan frábærlega þegar hann kom með tvöfalda vörslu, fyrst til að verja frá Alex Bruce þegar hann átti skalla og síðan aftur frá Snodgrass þegar að hann kom með frákastið.
Ramon Nunez átti síðan síðasta færi Leeds í leiknum þegar að hann átti skot frámhjá markinu.
En Watford endaði leikinn betur og komst Deeney upp vinstri vænginn og þurfti Lonergan að verja frá honum.
Liðin
Leeds: Lonergan, Connolly, Lees, Bruce, Robinson, White (Webber 45), Brown, Clayton (Nunez 68), McCormack, Becchio (Forssell 87), Snodgrass.
Varamenn: Bromby, Thompson.
Rautt spjald: Connolly (90).
Gul spjöld: Becchio, Connolly.
Watford: Kuszczak, Doyley, Nosworthy, Taylor, Dickinson, Murray, Eustace, Hogg, Yeates (Forsyth 73) ,Deeney, Iwelumo.
Varamenn: Loach, Bennett, Buaben, Garner.
Mörk: Iwelumo 5, 89.
Áhorfendur: 21,766
Dómari:: Paul Tierney
Upphitun fyrir Leeds United – Watford
Liðsfréttir
Darren O’Dea verður ekki með þar sem hann er í tveggja leikja banni fyrir 10 gul spjöld á tímabilinu.
Danny Pugh gæti komið aftur í liðið, annars er ekki búist við að Neil Warnock breyti miklu.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Ef Leeds vinnur, hafa þeir unnið meira en helming leikja sinna við Watford. Þeir hafa núna unnið sex af 13 leikjum þessara liða.
• Víti frá Robert Snodgrass í uppbótartíma gaf Leeds 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna, nú hafa þeir ekki tapað í níu deildarleikjum í röð gegn Watford.
• Watford hefur aðeins unnið Leeds tvisvar í deildinni, hins vegar unnu þeir úrslitaleik umspilsins árið 2006 og komust í Úrvalsdeildina á kostnað Leeds.
Leeds United
• Leeds eru í 10.sæti og unnu Millwall 0-1 síðasta laugardag, en þeir hafa ekki unnið tvo leiki í röð í deildinni síðan 3.desember.
• Þeir hafa unnið átta leiki heima og átta leiki á útivelli en fengið á sig 11 fleiri mörk á heimavelli.
• Liðið er eina liðið í deildinni sem hefur ekki haldið hreinu á heimavelli árið 2012.
Millwall 0-1 Leeds United
Leeds svaraði fyrir stórtapið í vikunni með því að vinna Millwall og eru því aðeins þrem stigum frá umspilssæti.
Ross McCormack skoraði af stuttu færi en það var fyrsta makið hans í átta leikjum.
Aðeins mínútu síðar varði Andy Lonergan víti frá Darius Henderson eftir að Alex Bruce braut af Andy Keogh.
Fyrirliði Millwall Paul Robinson hefði síðan getað jafnað undir lokin en skallinn hans fór í slánna.
Robert Snodgrass gaf tóninn en leikurinn var mjög harður, en hann braut illa á Jack Smith og fékk að líta gula spjaldið eftir aðeins tvær mínútur.
Harry Kane og Henderson voru næstir því að skora fyrir Millwall í gleymanlegum fyrri hálfleik. Ross McCormack skoraði síðan mark sem var dæmt af vegna rangstæðu.
En Leeds voru mikið betri í seinni hálfleik, Becchio skallaði boltann áfram á McCormack sem var kominn einn í gegn en Maik Taylor varði vel.
Gestirnir skoruðu svo loksins á 65.mínútu þegar að Snodgrass tók sprett upp hægri kantinn og átti flotann bolta á McCormack sem gat ekki annað en skorað.
Aðeins mínútu síðar fengu Millwall síðan víti þegar að Alex Bruce braut á Andy Keogh. Kane skoraði í kjölfarið en það var búið að dæma vítið.
Darius Henderson tók vítið en Andy Lonergan varði það frábærlega.
Þetta þýðir að Millwall hefur ekki enn unnið heimaleik á árinu.
Liðin
Millwall: Taylor, Smith (Montgomery 83), Robinson, Ward, Craig, Henry (Bouazza 83), Wright, Abdou, Kane, Henderson, Keogh.
Varamenn: Forde, Feeney, Lowry.
Gul spjöld: Keogh, Henry.
Leeds: Lonergan, Lees, Bruce, O’Dea, Robinson, White (Webber 62), Clayton, Brown, Snodgrass, Becchio, McCormack (Connolly 90).
Varamenn: Rogers, Forssell, Thompson.
Gul spjöld: Snodgrass, O’Dea.
Mark: McCormack 65.
Áhorfendur: 14,309
Dómari: Lee Probert
Upphitun fyrir Millwall – Leeds United
Liðsfréttir
Millwall
Það eru engin ný meiðslavandræði hjá Millwall og gæti Shane Lowry komið til baka eftir meiðsli.
Nick Montgomery gæti síðan spilað sinn fyrsta leik eftir að hafa komið á láni frá Sheffield United.
Leeds United
Leeds gerði met með því að tapa 3-7 gegn Nottingham Forest á þriðjudag, en eru þó ekki líklegir til að breyta miklu.
Alex Bruce og Andy O’Brien eru nálægt því að snúa aftur eftir að hafa spilað með varaliðinu.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Það er ekki mikið sem skilur liðin af í gegnum tíðina, en liðin hafa mæst 27 sinnum, Milllwall hefur unnið 12, Leeds 11 og fjórir leikir hafa endað með jafntefli. Bæði lið hafa síðan skorað 37 mörk,
• Millwall gæti unnið 5.heimasigurinn í röð gegn Leeds.
• Robert Snodgrass skoraði bæði mörk leiksins þegar að Leeds vann heimaleikinn 2-0. Leeds gæti því unnið Millwall tvöfallt í fyrsta skipti síðan 2008.
Millwall
• Millwall vann Doncaster 0-3 í síðasta leik, en vantar ennþá 10 stig til að fá 50 stig, en 50 stig er talið vera nóg til að geta haldið sér uppi í deildinni.
• Millwall hefur ekki unnið tvo leiki í röð í 23 leikjum.
• Millwall hefur reynt síðan á gamlársdag að vinna sinn 1000.heimaleik. Þeir eru eina liðið sem hefur ekki unnið heimaleik árið 2012 og hafa tapað síðustu þrem og fengið aðeins eitt stig af síðustu 18 mögulegum.
Leeds United
• Leeds eru í 10.sæti, sex stigum fyrir neðan umspilssæti.
• Leeds hefur haldið hreinu í síðustu þrem útileikjum.
• Neil Warnock er ða leita að sínum öðrum sigurleik eftir að hafa tekið við Leeds.











