Author Archive
Leeds United 3-2 Doncaster Rovers
Luciano Becchio skoraði dramatískt sigurmark þegar komið var langt framyfir 90 mínútur. Neil Warnock nýráðinn þjálfari Leeds var meðal áhorfenda.
Það var fátt sem benti til þess að Leeds væri að fara að vinna þegar að Mamadou Bagayoko skoraði fyrstu 2 mörk leiksins fyrir Doncaster.
Heimamenn minkuðu hinsvegar muninn í næstu sókn þegar að Andros Townsend skoraði sitt fyrsta mark fyrir Leeds.
Adam Clayton jafnaði síðan leikinn áður en að Becchio skoraði á 99.mínútu og tryggði Leeds mikilvæg 3 stig.
Uppbótartíminn var lengdur þar sem að Tommy Spurr og Robbie Rogers lentu í ljótu samstuði.
Það dugði Becchio til að skora sigurmarkið og að koma Leeds í 10.sæti deildarinnar.
En það var meiri dramatík í lokin þegar að menn byrjuðu að ýta hvorum öðrum á leiðinni í búningsklefana.
Þetta var fullkominn leikur fyrir Warnock sem var fenginn til Leeds til að leysa Simon Grayson af þangað til eftir 2012/2013 tímabilið, eftir að hafa fundað með Ken Bates í Mónakó á föstudaginn.
Warnock talaði við leikmennina fyrir leik og í hálfleik í síðasta leik sem Neil Redfearn þjálfaði.
En leikurinn byrjaði alveg hræðilega fyrir Leeds þar sem að Doncaster komst verðskuldað yfir þegar að James Hayter komst einn gegn Lonergan, Lonergan varði en boltinn hrökk á Bagayoko sem skoraði af öryggi.
Bagayoko kom Doncaster síðan í 0-2 í síðari hálfleik þegar að hann potaði boltanum inn eftir góðan undirbúning El-Hadj Diouf og Spurr.
Aðdáendur Leeds reiddust heldur betur eftir þetta, en leikmenn Leeds náðu að þagga niður í þeim reiðisröddum þegar að Townsend skoraði með góðu skoti framhjá Button í markinu aðeins mínútu eftir að Doncaster komst í 0-2
Leeds voru byrjaðir að stjórna leiknum núna og jöfnuðu þegar að Robert Snodgrass átti fyrirgjöf sem Clayton kláraði virkilega vel.
En þetta voru ekki lokin á dramatíkini þar sem Leeds krækti í ólíklegan sigur á 99.mínútu. Becchio skoraði við vítateigslínuna og hljópu allir til Readfern til að fagna.
Doncaster er hinsvegar ennþá á botninum og hafa ekki unnið í síðustu 5 og ekki síðustu 8 á útivelli.
Um leikinn
Leeds United
- 01 Lonergan
- 04 Bruce
- 22 Lees
- 28 White
- 48 O’Dea
- 15 Clayton
- 16 Pugh (Gult Spjald) (Brown – 60′ )
- 17 Townsend (Rogers – 79′ )
- 10 Becchio
- 23 Snodgrass (Gult Spjald)
- 44 McCormack
Varamenn
- 24 Taylor
- 02 Connolly
- 08 Brown
- 06 Rogers (Forssell – 90′ )
- 18 Forssell
Doncaster Rovers
- 47 Button
- 11 Lockwood
- 14 Spurr (O’Connor – 90′ )
- 21 Hird
- 39 Chimbonda
- 08 Stock
- 17 Barnes
- 18 Gillett
- 12 Hayter (Robert – 89′ )
- 19 Diouf
- 45 Bamogo (Bagayoko – 25′ )
Substitutes
- 02 O’Connor
- 04 Martis
- 16 Oster
- 22 Robert
- 49 Bagayoko
Dómari: Stroud
Áhorfendur: 21,181
Upphitun fyrir Leeds United – Doncaster Rovers
Liðsfréttir
Leeds
Fabian Delph meiddist á ökla gegn Coventry og verður ekki með.
MIchael Brown eða Andros Townsend gætu komið í staðin. Andy O’Brien er einnig að reyna að koma sér í byrjunarliðið.
Doncaster
Martin Woods og Fabien Robert gætu komið til baka eftir meðsli.
Habib Beye er í banni og David Button hledur líklegast áfram í markinu.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Leeds geta unnið sinn 10 leik af 20 gegn Doncaster. Doncaster hafa unnið 3 og 7 sinnum hafa liðin gert jafntefli.
• Leeds getur unnið 3. deildarleikinn í röð gegn Doncaster. Þeir hafa skorað 8 mörk í síðustu 2
• Doncaster hefur aðeins einu sinni unnið á Elland Road en það var árið 2008
Leeds United
• Leeds eru 6 stigum frá umspilssæti, þeir hafa tapað 3 af síðustu 4 leikjum, og geta tapað 3 í röð í annað skipti í síðustu 11 leikjum.
• Leeds hefur skorað í öllum leikjum sínum árið 2012 og þurfa 1 í viðbót til að skora 50 deildarmörk.
• Þeir hafa unnið alla 6 leiki sína þar sem þeir hafa haldið hreinu.
Doncaster Rovers
• Doncaster eru aftur dottnir niður í neðsta sætið og hafa ekki unnið í síðustu 4 leikjum. Þeir hafa aðeins einu sinni unnið í síðustu 7.
• Doncaster hafa ekki unnið í síðustu 7 leikjum á útivelli og aðeins fengið 1 stig af síðústu 21 mögulegum síðan þeir unnu Ipswich 3-2 á Portman Road 5.nóvember.
• Doncaster hefur aðeins skorað opnunarmarkið í 8 af 29 leikjum sínum á tímabilinu.
Leeds United 1-2 Brighton
Brighton komst uppfyrir Leeds í deildinni með sigri á laugardaginn. Alan Navarro skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Brighton eru því enn taplausir á árinu,
Craig Mackail-Smith kom gestunum yfir eftir sendingu frá Vicente Rodriguez þegar 13 mínútur voru til leiksloka.
En aðeins 2 mínútum seinna jafnaði Luciano Becchio með skalla eftir hornspyrnu.
En Navarro átti síðasta orðið þegar að lágt skot hans fann leið framhjá Lonergan í marki Leeds. Þetta var fyrsta tap Neil Redfearn sem stjóri Leeds.
Leedsarar virtust hafa gert nóg til að ná jafntefli, en þegar flautað var til leiksloka var mikið um reitt fólk á Elland Road. Stuðningsmenn höfðu haldið mótmæli fyrir leik vegna stjórnarformanninum Ken Bates
Heimamenn hefðu átt að komast yfir eftir um 4 mínútur þegar að Becchio átti skalla í stöngina eftir að Snodgrass átti flottann sprett upp kantinn.
Leikmenn Leeds vildu síðan fá vítaspyrnu þegar að Adam Smith átti fyrirgjöf sem endaði á Ross McCormack sem ætlaði að skjóta en virtist augljóslega keyrður niður af Adam El-Abd. En dómarinn sagði nei.
Brighton endaði hálfleikinn betur og komust næstum yfir strax í byrjun seinni hálfleiks þegar að Andy Lonergan varði frábærlega með annari hendi frá Ashley Barnes..
En eftir þetta voru leikmenn Leeds meira með boltann. Það voru hinsvegar Brighton menn sem komust yfir þegar að Mackail-Smith skoraði 8.markið sitt á tímabilinu með afgreiðslu af stuttu færi.
2 mínútum seinna var Becchio búinn að janfa þegar að hann losaði sig við manninn sinn í teignum og átti mjög flottann skalla í bláhornið.
En það var ennþá tími fyrir Brighton að skora sigurmarkið í leik þar sem jafntefli hefðu nú líklega verið sanngjörn úrslit. Liam Bridcutt vann boltann á miðjunni og gaf á Navarro sem skoraði og tryggði Brighton sigur.
Um leikinn
Leeds
- 01 Lonergan
- 14 Smith
- 22 Lees
- 28 White (Townsend – 81′ )
- 48 O’Dea
- 15 Clayton (gult spjald)
- 16 Pugh
- 25 Delph
- 10 Becchio (gult spjald)
- 23 Snodgrass (gult spjald)
- 44 McCormack (Nunez – 90′ )
Varamenn
- 24 Taylor
- 04 Bruce
- 08 Brown
- 17 Townsend
- 20 Nunez
Brighton
- 01 Brezovan
- 02 Mattock
- 03 Greer
- 06 El-Abd (gult spjald)
- 36 Jara
- 08 Navarro
- 25 LuaLua (Vicente – 61′ )
- 26 Bridcutt (gult spjald)
- 30 Buckley (Noone – 46′ )
- 09 Barnes
- 24 Vokes (Mackail-Smith – 74′ )
Varamenn
- 16 Ankergren
- 14 Calderon
- 11 Noone
- 15 Vicente
- 12 Mackail-Smith
Dómari: Graham Salisbury
Áhorfendur:23,171
Upphitun fyrir Leeds United – Brighton
Liðsfréttir
Leeds United
Neil Redfearn þarf ekki að hafa áhyggjur af nýjum meðslum né bönnum. En þetta er annar leikurinn sem hann stýrir.
Bandaríski landsliðsmaðurinn Robbie Rogers vonast til að spila sinn fyrsta leik fyrir Leeds.
Brighton
Matt Sparrow verður ekki með Brighton, en hann verður í banni.
Lánsmaðurinn Gonzalo Jara Reyes gæti spilað eftir meiðsli og einnig hafa Craig Noone og Kazenga LuaLua báðir jafnað sig á meiðslum.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Leeds eru búnir að vinna helmingi fleiri en þeir hafa tapað gegn Brighton. En það eru 16 sigrar, 8 töp og 10 jafntefli.
• Fyrri leikur liðanna fór 3-3 í stórskemmtilegum fótboltaleik.
• Brighton hefur aðeins einu sinni unnið á Elland Road, það var árið 1985.
Leeds United
• Leeds eru 3 sætum og 2 stigum frá umspilssæti og geta unnið 4 leikinn sinn af síðustu 6, og geta unnið 2 í röð í fyrsta skipti síðan snemma í desember.
• Leeds er eitt af tveim liðum sem hafa unnið alla leikina sína í deildinni þar sem þeir hafa haldið hreinu.
• Leeds hefur skorað 9 mörk í uppbótartíma á þessu tímabili. Þar á meðal 4 í síðustu 6 leikjum.
Brighton & Hove Albion
• Brighton er eitt af 3 liðum sem hafa ekki tapað á þessu ári. Þeir hafa fengið 13 stig af síðustu 15 mögulegum og hafa unnið 5 og gert 3 jafntefli síðan Coventry vann þá um áramótin.
• Gus Poyet fer aftur á gamla heimavöllinn sinn en hann var aðstoðar þjálfari Leeds frá 2006 – 2007. Hann hefur ekki unnið Leeds síðan hann tók við Brighton.
• Ekkert lið hefur fengið á sig jafn mörg spjöld og Brighton á tímabilinu, en þau eru 73.
Upphitun fyrir Leeds United – Ipswich
Liðsfréttir
Leeds United
Það eru engin ný meiðslavandræði né bönn hjá Leeds.
Robert Snodgrass gæti komið í byrjunarliðið á ný ásamt því að Fabian Delph kemur líklegast í hópinn.
Ipswich
Jason Scotland og Grant Leadbitter eru heilir eftir meiðsli.
Damien Delaney og Lee Bowyer eru hinsvegar ennþá meiddir.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Þetta er í 60.skipti sem Leeds og Ipswich mætast, Leeds hefur unnið 25,Ipswich 18 og 16 sinnum hafa liðin skilið jöfn.
• Leeds hefur ekki náð að vinna Ipswich í síðustu 9 leikjum.
• Leeds vann Ipswich seinast árið 2002 en það var í úrvalsdeild.
Leeds United
• Leeds hefur aðeins unnið 1 af síðustu 7 í öllum keppnum, en þeir hafa fengið 4 stig úr síðustu 2 leikjum, þar á undan töpuðu þeir 3 í töð. Þeir eru í 11.sæti, 3 stigum frá umspilssæti.
• Þeir hafa unnið einum leik meira á heimavelli en útivelli en hafa engu að síður skorað 6 mörkum meira á útivelli.
• Leeds hefur skorað 7 af 40 mörkum sínum í uppbótartíma.
Ipswich Town
• Ipswich eru 3 sætum og 4 stigum fyrir ofan fallsæti, þeir hafa ekki unnið í 6 leikjum í röð og hafa tapað 3 útileikjum í röð.
• Þeir hafa unnið 2 og tapað 10 í síðustu 14 leikjum. Þeir hafa fengið á sig fleiri mörk en öll önnur lið í deildinni og hafa leikir þeirra innihaldið fleiri mörk en hjá öðrum liðum í deildinni.
• Ipswich hefur fengið á sig 6 mörk í uppbótartíma á tímabilinu.
Upphitun fyrir Arsenal – Leeds United
Liðsfréttir
Arsenal
Thierry Henry er líklegur til að vera með, en Robin Van Persie fær frí og Gervinho er farinn á Afríku mótið.
Arsenal eru ekki með marga heila varnarmenn og er Johan Djourou líka í banni.
Hjá Arsenal eru Thomas Vermaelen, Bacary Sagna, Carl Jenkinson og Andre Santos allir meiddir.
Marouane Chamakh fær einnig að vera með, en Arsenal fékk að fresta því að hann færi í Afríkukeppnina.
Leeds United
Hjá Leeds er Kisnorbo frá út tímabilið ásamt því að Tom Lees og Alex Bruce eru tæpir fyrir leikinn.
Jonny Howson, Leigh Bromby og Snodgrass verða báðir frá vegna meiðsla.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Liðin hafa mæst 118 sinnum og hafa Arsenal unnið 45, Leeds 41 og 32 jafntefli. Leeds vann Arsenal seinast árið 2003.
• Allan Clarke skoraði sigurmark Leeds árið 1972 þegar þessi lið mættust í úrslitaleik keppninar. Samtals leiðir Arsenal 6-2 í keppninni.
• Þetta er annað árið í röð sem þessi lið mætast á sama stað í bikarnum.
Arsenal
• Aðeins eitt lið hefur unnið þessa keppni oftar en Arsenal (Manchester Unnited) en Arsenal hefur unnið hana 10 sinnum.
• Arsenal hefur alltaf komist áfram úr þessari umferð síðan að Arsene Wenger tók við.rival.
• Sheffield United var síðasta liðið utan úrvalsdeildarinnar til að slá út Arsenal
Leeds United
• Leeds sló út Manchester United fyrir 2 árum í sömu keppni.
• Það var eina skiptið sem Leeds komst í 4.umferð keppninnar síðan 2003, þá komust þeir í 8.liða úrslit.
• Leeds vann Burnley í síðasta leik 2-1 eftir að hafa tapað 3 leikjum í röð þar á undan.





