Leikmannamál..
Nú er félagaskiptaglugginn opinn og það er margt að frétta hjá Leeds eins og hjá flestum liðum.
Kantmaðurinn Robbie Rogers, 24 ára Bandrarískur landsliðsmaður hefur samið vil Leeds til 18 mánaða, hann spilaði með Columbus Crew þar vestra en varð samningslaus í desember, einhver bið var eftir atvinnuleyfi enn það gekk eftir.
Fabian Delph sem allir Leedsarar ættu að kannast við er kominn aftur til okkar á láni frá Aston Villa í einn mánuð en bæði Leeds og Delph sjálfur vilja að lánið verði út leiktíðina
Jonathan Howson var seldur til Norwich á 2 miljónir punda, hann hefði orðið samningslaus í sumar og var seldur núna til að fá einhvern aur fyrir hann, það eru margar skiptar skoðanir á þessari sölu sem er skiljanlegt því þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem að leeds er í vandræðum að semja við leikmenn að nýju, í framhaldi af þessari sölu þá var boðað til mótmæla fyrir utan Elland Road til að mótmæla eignarhaldi Ken Bates og hvernig hann rekur klúbbinn.
Ben Parker fór til Carlisle á eins mánaðar samning, vonandi kemst hann í leikform þar.




