Staðan í Championship
Championship Fixtures & Results (http://www NULL.footbo NULL.com/Competitions/Championship)
Leikirnir
Leeds United history, photos & videos (http://www NULL.footbo NULL.com/Teams/Leeds_1)

Upphitun fyrir Leeds United – Ipswich

Liðsfréttir

Leeds United

Það eru engin ný meiðslavandræði né bönn hjá Leeds.

Robert Snodgrass gæti komið í byrjunarliðið á ný ásamt því að Fabian Delph kemur líklegast í hópinn.

Ipswich

Jason Scotland og Grant Leadbitter eru heilir eftir meiðsli.

Damien Delaney og Lee Bowyer eru hinsvegar ennþá meiddir.

Staðreyndir

Í gegnum tíðina

• Þetta er í 60.skipti sem Leeds og Ipswich mætast, Leeds hefur unnið 25,Ipswich 18 og 16 sinnum hafa liðin skilið jöfn.

• Leeds hefur ekki náð að vinna Ipswich í síðustu 9 leikjum.

• Leeds vann Ipswich seinast árið 2002 en það var í úrvalsdeild.

Leeds United

• Leeds hefur aðeins unnið 1 af síðustu 7 í öllum keppnum, en þeir hafa fengið 4 stig úr síðustu 2 leikjum, þar á undan töpuðu þeir 3 í töð. Þeir eru í 11.sæti, 3 stigum frá umspilssæti.

• Þeir hafa unnið einum leik meira á heimavelli en útivelli en hafa engu að síður skorað 6 mörkum meira á útivelli.

• Leeds hefur skorað 7 af 40 mörkum sínum í uppbótartíma.

Ipswich Town

• Ipswich eru 3 sætum og 4 stigum fyrir ofan fallsæti, þeir hafa ekki unnið í 6 leikjum í röð og hafa tapað 3 útileikjum í röð.

• Þeir hafa unnið 2 og tapað 10 í síðustu 14 leikjum. Þeir hafa fengið á sig fleiri mörk en öll önnur lið í deildinni og hafa leikir þeirra innihaldið fleiri mörk en hjá öðrum liðum í deildinni.

• Ipswich hefur fengið á sig 6 mörk í uppbótartíma á tímabilinu.

Leave a Reply

Spurningin
Sorry, there are no polls available at the moment.
Gakktu í klúbbinn!
Ef þú skráir nafn þitt og netfang í gluggana hér að neðan þá skráir þú þig í stuðningsmannaklúbb Leeds á Íslandi.

Söguleg stund