Staðan í Championship
Championship Fixtures & Results (http://www NULL.footbo NULL.com/Competitions/Championship)
Leikirnir
Leeds United history, photos & videos (http://www NULL.footbo NULL.com/Teams/Leeds_1)

Upphitun fyrir Arsenal – Leeds United

Liðsfréttir

Arsenal

Thierry Henry er líklegur til að vera með, en Robin Van Persie fær frí og Gervinho er farinn á Afríku mótið.

Arsenal eru ekki með marga heila varnarmenn og er Johan Djourou líka í banni.

Hjá Arsenal eru Thomas Vermaelen, Bacary Sagna, Carl Jenkinson og Andre Santos allir meiddir.

Marouane Chamakh fær einnig að vera með, en Arsenal fékk að fresta því að hann færi í Afríkukeppnina.

Leeds United

Hjá Leeds er Kisnorbo  frá út tímabilið ásamt því að Tom Lees og Alex Bruce eru tæpir fyrir leikinn.

Jonny Howson, Leigh Bromby og Snodgrass verða báðir frá vegna meiðsla.

Staðreyndir

Í gegnum tíðina

• Liðin hafa mæst 118 sinnum og hafa Arsenal unnið 45, Leeds 41 og 32 jafntefli. Leeds vann Arsenal seinast árið 2003.

• Allan Clarke skoraði sigurmark Leeds árið 1972 þegar þessi lið mættust í úrslitaleik keppninar. Samtals leiðir Arsenal 6-2 í keppninni.

• Þetta er annað árið í röð sem þessi lið mætast á sama stað í bikarnum.

Arsenal

• Aðeins eitt lið hefur unnið þessa keppni oftar en Arsenal (Manchester Unnited) en Arsenal hefur unnið hana 10 sinnum.

• Arsenal hefur alltaf komist áfram úr þessari umferð síðan að Arsene Wenger tók við.rival.

• Sheffield United var síðasta liðið utan úrvalsdeildarinnar til að slá út Arsenal

Leeds United

• Leeds sló út Manchester United fyrir 2 árum í sömu keppni.

• Það var eina skiptið sem Leeds komst í 4.umferð keppninnar síðan 2003, þá komust þeir í 8.liða úrslit.

• Leeds vann Burnley í síðasta leik 2-1 eftir að hafa tapað 3 leikjum í röð þar á undan.

Leave a Reply

Spurningin
Sorry, there are no polls available at the moment.
Gakktu í klúbbinn!
Ef þú skráir nafn þitt og netfang í gluggana hér að neðan þá skráir þú þig í stuðningsmannaklúbb Leeds á Íslandi.

Söguleg stund