Staðan í Championship
Championship Fixtures & Results (http://www NULL.footbo NULL.com/Competitions/Championship)
Leikirnir
Leeds United history, photos & videos (http://www NULL.footbo NULL.com/Teams/Leeds_1)

Meiðsli og samningar

Patrick Kisnorbo verður frá allt tímabilið eftir að hafa meiðst á hné í Burnley leiknum. þetta eru önnur alvarlegu meiðslin hans á stuttum tíma, hann sleit hásin í mars 2010 og var frá í 14 mánuði, hann fékk 2. ára samning í sumar eftir að hafa sýnt Grayson fram á að hann væri kominn í form en síðan þá hefur hann ekki verið sérstakur inni á vellinum, því miður.

Leeds mátti nú ekki við þessum meiðslum enda er meiðslalistinn töluvert langur,

  • Ben Parker, er enn að jafna sig eftir stanslaus meiðsli síðustu 2 ár
  • Tom Lees er að jafna sig eftir heilahristing, byrjaður að æfa
  • Leigh Bromby, ökklameiðsli, tilbúinn erftir 2-3 vikur
  • Alex Bruce er tognaður
  • Robert Snodgrass fór í hálskyrtlatöku og er búinn að missa af síðustu tveimur leikjum en er vonast eftir honum í Palace leikinn 14 jan
  • Jonny Howson er meiddur á hné og verður frá í einhverja mánuði
  • Davide Somma er byrjaður að æfa aftur eftir erfið og löng meiðsli en það er ekki búist við honum strax í hóp

Síðan er Andy O’Brian sem spilar aldrei aftur fyrir Leeds vegna deilna við Simon Grayson, þannig að hópurinn er að þynnast.

Leeds samdi í gær við varamarkvörðinn Maik Taylor út leiktíðina og fyrr í vikunni sömdu þeir við Danny Pugh en hann er búinn að vera á láni í vetur og spila 17 leiki og standa sig ágætlega.

2 Responses to “Meiðsli og samningar”

  • Finnbogi:

    Þurfum 2 sterka miðjumenn og 2 sterka varnarmenn, ástandið er það slæmt hjá okkur.

  • Heimir:

    Ólíklegt að Bates fari að spreða peningum þannig að ég held að unglingarnir fái að spila meira en gert var ráð fyrir.

Leave a Reply

Spurningin
Sorry, there are no polls available at the moment.
Gakktu í klúbbinn!
Ef þú skráir nafn þitt og netfang í gluggana hér að neðan þá skráir þú þig í stuðningsmannaklúbb Leeds á Íslandi.

Söguleg stund