Upphitun fyrir Leeds United – Burnley
Liðsfréttir
Leeds United
Andros Townsend fer líklegast beint í hópinn hjá Leeds.
Tom Lees gæti spilað aftur eftir höfuð meiðsli, Robert Snodgrass og Johnny Howson eru ennþá meiddir.
Burnley
Það verður líklegast ekki mikið um breytingar hjá Burnley, sem hafa unnið 6 af síðustu 7 leikjum.
Michael Duff er hinsvegar tæpur fyrir leikinn.
Staðreyndir
Í gegnum tíðina
• Leeds hefur unnið 28 og tapað 14 í deildarleikjum þessara liða í gegnum tíðina.
• Leeds geta unnið 12. leikinn af síðustu 14 á milli þessara liða.
• Burnley hefur aðeins tvisvar náð að taka stig af Leeds á síðustu 37 árum.
Leeds United
• Leeds eru í hættu á að tapa 4 leikjum í röð í fyrsta skipti síðan í apríl 2010.
• Sigurinn yfir MIllwall 3.des er eini sigur þeirra á heimavelli í 6 leikjum.
• Síðustu tveir leikir strax eftir áramót hafa farið 1-1 hjá Leeds.
Burnley
• Burnley geta unnið 7. leikinn sinn í 8 leikjum og 4. í röð.
• Burnley hefur haldið hreinu 3 leiki í röð.
• Burnley hefur unnið síðustu 3 útileiki sína og ekki tapað stigi á útivelli síðan 22.nóvember.