Starfsemin
Hvað gerir klúbburinn?
Stærsta verkefnið eru ferðir á Elland Road, minnst árlega, helst oftar. Klúbburinn heldur einnig úti heimasíðu ásamt því að gefa út lítið fréttabréf þegar tilefni er til.
Hvar hittast Leedsarar?
Hjá þeim sem eru á höfuðborgarsvæðinu er skyldumæting á Ölland Road (í Ölveri, Glæsibæ) í hvert sinn sem Men in White eru í beinni. Hinir fylgjast grannt með gegnun netið og tölvupóstinn.
Árgjald og skírteini
Það kostar 1.650 krónur á ári að vera í klúbbnum. Árgjaldið er rukkað með gíróseðli. Félagar sem eru yngri en 16 ára greiða ekki árgjald.
Glæsileg skírteini eru send félagsmönnum.
Miðar á Elland Road
Klúbburinn aðstoðar félagsmenn við að útvega miða á Elland Road, hvort sem þeir fara á eigin vegum eða í hópferðum á vegum klúbbsins. Innan skamms mun klúbburinn einnig geta útvegað miða á útileiki.
Velkomin(n) í klúbbinn
Ef þú vilt ganga í klúbbinn, þá er það hægt á hér til hægri.