Nýjustu fréttir
Staðan í Championship
Championship Fixtures & Results (http://www NULL.footbo NULL.com/Competitions/Championship)
Leikirnir
Leeds United history, photos & videos (http://www NULL.footbo NULL.com/Teams/Leeds_1)

Klúbbfréttir

Klúbbfélagar eru hvattir til að senda myndir af sér á Elland Road,  eða með sér og  núverandi eða fyrrverandi leikmönnum Leeds. Myndirnar verða birtar í dálkinum "Myndir". Sendið myndir og upplýsingar  á leeds@leeds.is

Leeds í beinni á laugardag

Leikur Middlesboro og Leeds á laugardag verður sýndur beint í Ölveri, Glæsibæ og hefst kl. 16:20.

Leeds er í 10. sæti og Middlesboro í 18. sæti. Liðin hafa leikið 78 deildarleiki í gegnum tíðina, Middlesboro með 26 sigra, Leeds með 29 og 23 jafntefli. Liðin hafa mæst 5 sinnum í FA-Cup, bæði lið með 2 sigra, 1 jafntefli.

Stjóri Middlesboro er fyrrum leikmaður Leeds, Gordon Strachan.

Leedsarar hafa fyrir löngu selt alla sína miða, 4.000 talsins.

Steini

Golfmót stuðningsmannaklúbbs

Golfmót klúbbsins var haldið á Svarfhólsvelli á Selfossi þann 6. ágúst sl. Þrettán kepptu um farandbikarinn okkar í mótinu. Veður var frekar risjótt, þurrt og logn og rauk upp í skúrir með hressilegum vindi af og til. Völlurinn var í góðu standi og allir skemmtu sér vel og létu smábleytu ekki trufla sig í að njóta dagsins. Mótið var punktakeppni með fullri forgjöf. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin. Einnig voru nándarverðlaun á öllum par 3 brautum. Verðlaunin voru gull, silfur og brons medalíur. Fyrsta sætið fékk aðalbúninginn, annað sæti varabúninginn og það þriðja gjafabréf frá Sportbarnum í Glæsibæ kr. 6.500. Góður félagi okkar, Ásgeir Jón Guðbjartsson átti leið til Leeds og fór í búðina á Elland Road og keypti fyrir okkur verðlaunin á mótið. Þökkum við honum kærlega fyrir þessa aðstoð við mótið.

Leikar fóru þannig að Leeds meistarinn 2010 er Tómas Birgisson en hann fékk 41 punkt. Óhætt er að segja að þetta hafi verið hans dagur því hann fékk tvenn nándarverðlaun einnig. Frábær árangur og óskum við honum til hamingju með sigurinn.

Klúbburinn vill þakka öllum þátttakendum fyrir skemmtilegan dag og hlakka til að sjá ykkur aftur næsta sumar.

Úrslit:

1. sæti: Tómas Birgisson, 41 punktur.

2. sæti: Kjartan Sveinbjörnsson, 36 punktar.

3. sæti: Ásgeir Jón Guðbjartsson, 32 punktar.

Nándarverðlaun:

3. hola: Tómas Birgisson, 7,52 m.

7. hola, Ársæll Ó. Steinmóðsson, 4.68 m

12. hola, Tómas Birgisson, 5.83 m

16. hola, Kjartan Sveinbjörnsson, 6,41 m

Besta nýting vallar:

Jón Grétar Hafsteinsson

ÁS

Golfmót 2010

(http://leeds NULL.is/images/news/Bremner%20statue NULL.png)Nánari upplýsingar og skráning hjá Ársæli, sími 896-6076.

Steini

Aðalfundur 2010

(http://leeds NULL.is/images/news/leedsfront NULL.bmp)Stuðningsmannaklúbbur Leeds United á Íslandi heldur aðalfund sinn 2010 í Ölveri, Glæsibæ, laugardaginn 7. ágúst kl. 15.00.

Steini
Spurningin
Sorry, there are no polls available at the moment.
Gakktu í klúbbinn!
Ef þú skráir nafn þitt og netfang í gluggana hér að neðan þá skráir þú þig í stuðningsmannaklúbb Leeds á Íslandi.

Söguleg stund