Gakktu í klúbbinn!
Ef þú skráir nafn þitt og netfang í gluggana hér að neðan þá skráir þú þig í stuðningsmannaklúbb Leeds á Íslandi.

Spurningin
Sorry, there are no polls available at the moment.

Jason Pearce

Það hefur verið gengið frá fyrstu kaupum fyrir næsta tímabil, Jason Pierce er maðurinn.

Hann var fenginn á í kringum 500.000 pund frá Portsmouth. Þessi leikmaður var valinn besti leikmaður Porstsmouth á tímabilinu sem var að klárast en hann ólst upp þar. Hann komst hinsvegar ekki strax í liðið þar og fór hann til Bournemouth þar sem að hann var fyrrirliði og með þeirra bestu mönnum þegar að þeir komust næstum upp um tvær deildir á tveimur árum. Hann var einnig fyrirliði Portsmouth seinni hlutann á þessu tímabili. Ég spurði nokkra Englendinga sem styðja Portsmouth og mæta á leiki, um leikmanninn og sögðu þeir mér að við fengum hann alltof ódýrt og að þetta væri frábær leikmaður.

Jason Pearce er mættur.

Hreinsun……

Neill Warnock birti í dag lista yfir þá leikmenn sem eru ekki í hans plönum fyrir næstu leiktíð.

Byrjunarliðsmenn sem verða settir á sölulista eru:

  • Adam Clayton
  • Ramon Nunez
  • Billy Paynter
  • Paul Connolly
  • Andy O´Brian
  • Paul Rachubka

Síðan eru það leikmennirnir sem renna út á samning í sumar og fá ekki endurnýjun

  • Alex Bruce
  • Lloyd Sam
  • Mikael Forssel
  • Danny Webber
  • Maik Taylor

Fyrir voru þeir Ben Parker og Mika Vayrynen leystir undan samning og Darren O´Dea og Paul Robinson fóru til baka til sinna liða eftir lánssamning í vetur.

Þetta er ágætis  hreinsun hjá Warnock og verður forvitnilegt að fylgjast með leikmannamálum í sumar.  MOT

Spurningin

Spurt var: Kemst Leeds í Play-Offs?

63 svöruðu, 35 voru bjartsýnir og sögðu já, en 28 höfðu rétt fyrir sér og sögðu nei.

Enn eitt tímabil vonbrigða fyrir stuðningsmenn Leeds United er að baki, liðið hafnaði í 14. sæti og tapaði 11 leikjum á Elland Road, sem er félagsmet sem enginn vildi slá.

Leedsklúbburinn á Íslandi fór eina skipulagða ferð á Elland Road, í byrjun desember og hitti á magnaðan leik. 2-0 sigur á Millwall, en það sem yfirgnæfði allt saman var heiðurinn sem Gary Speed var sýndur, bæði fyrir leik og á leiknum, en hann hafði fallið fyrir eigin hendi viku áður. Algjörlega ógleymanlegt, þegar 32.000 stuðningsmenn Leeds sungu nafn hans allan tímann. Vonandi tekst Warnock að búa til lið sem kemur okkur upp um deild að ári, hinir frábæru stuðningsmenn Leeds United eiga það skilið!

Leeds United 1-2 Leicester City

Harry Panayitotou skoraði sigurmarkið seint í leiknum þegar að Leicester vann Leeds 1-2 á Elland Road.

Martyn Waghorn skoraði eina markið í leiðinlegurm fyrri hálflleik þar sem að hann nýtti sér lélegan varnarleik hjá Danny Pugh.

En Danny Webber jafnaði á 82.mínútu með að pota boltanum inn fyrir opnu marki.

En þegar að allt stefndi í 1-1 jafntefli kom Panayiotou sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir Leicester og skoraði sigurmarkið.

Fyrir vikið brutu Leeds met sem þeim langaði ekkert að brjóta með því að tapa 11 leikjum á heimavelli á sama tímabili.

Þó að Leicester fékk stigin 3 spilaði hvorugt liðið mjög vel í þessum leik þar sem lítið var undir.

Ben Marshall var nálægt því að skora nokkrum sinnum, en það var hinn 17 ára Panayiotou sem stal senunni.

Leedsarar voru mjög ósáttir við markið þar sem þeim fannst það vera rangstæða.

Það er talað um að þetta sé tímabil til að gleyma og er Warnock búinn að tala mikið um það að hann ætli að taka leikmannahópinn í gegn.

Leikurinn

Leeds: Lonergan, Connolly, Bruce, Lees, Pugh, Snodgrass, Brown,
Clayton, Thompson (Webber 57), McCormack,Becchio (Forssell 75).

Varamenn: O’Brien, Nunez, Taylor.

Spjöld: Pugh, Brown.

Mark: Webber 82.

Leicester: Schmeichel, Moore, St. Ledger, Morgan, Konchesky, Dyer (Panayiotou73), Drinkwater, Bamba, Marshall, Beckford (Vassell 46), Waghorn (Nugent 63).

Varamenn: Logan,Peltier.

Spjald: St. Ledger.

Mörk: Waghorn 39,Panayiotou 90.

Áhorfendur: 25,664

Dómari: Danny McDermid (Hampshire).

Búningurinn fyrir næsta tímabil.

Þetta er alvöru.

Danny McDermid dæmir Leeds-Leicester

Danny McDermid mun dæma leik Leeds United og Leicester City á Elland Road á laugardaginn.

En hann hefur aðeins dæmt 15 leiki á þessu tímabili og sýnt 43 gul og 2 rauð spjöld.
Þetta verður í fyrsta skipti sem að hann dæmir leik hjá Leeds síðan á 2009/10 tímabilinu þegar að Leeds unnu Stockport 2-0 á heimavelli.

Stockport leikurinn var sá fyrsti sem að hann dæmdi hjá Leeds síðan að hann rak bæði Jermaine Beckford og Tresor Kandol útaf í 1-1 jafntefli gegn Gillingham á útivelli á 2007/08 tímabilinu. Það var fyrsti leikurinn sem Leeds vann ekki það tímabil, en þeir höðfu unnið fyrstu 7 leikina.

Síðasti Leicester leikur sem að hann dæmdi var 2-0 tap gegn Cardiff á síðasta tímabili.